27. desember 2008 klukkan 04:57
Eg veit thetta kemur seint, en thad kom tho engu ad sidur! hvernig erud thid buin ad hafa thad um jolin! Og, ja, til hamingju halli og heidrun med brudkaupid a morgun! vona ad thad verdi alveg yndislegt! :)
Eg er buin ad hafa thad mjog gott um jolin, og er planid ad skella ser a djammid a morgun! Eg for i party i kvold med badum braedrum minum sem var soldid fyndid, en mjog gaman! :) hvad med ykkur.. er eitthvad djamm a lidinu? og eru ekki allir spenntir fyrir aramotunum? :)
kv. vala
14. desember 2008 klukkan 10:16

Það er klárlega kominn tími á að reyna að hisja þessa síðu uppúr drullunni !
Ég ætlaði að athuga hvort það væri stemming fyrir partý-i á gamlárskvöld ? Mig langaði að halda smá svona "loksins kominn heim" partý og frétti að fólk væri að leyta að einhverjum til að halda partý á gamlárskvöld ... hví ekki að splæsa því saman?
Látið heyra í ykkur
-Helgi R
05. september 2008 klukkan 14:02
Jæja ætla að leyfa mér að skrifa nýja færslu núna ;o)
Þar sem ég er að flytja af landi brott og á eiginlega hvergi heima í augnablikinu þá ætla ég að kveðja ykkur á Rosenberg (nýopnað á nýjum stað - Klapparstíg þar sem spúttnik var og svo 7 9 13).
Ég verð þar frá 8:00pm og ég giska á að það byrji live tónlist kl. 10:00pm en kostar samt ekkert inn.
Mér þætti vænt um að sjá ykkur sem flest!
knus og kram
Jenný Lára
Söngfuglar
03. september 2008 klukkan 08:18
Eru ekki allir í stuði? :P
Nú er einmitt góður tími til að halda þessari síðu lifandi, ég útí Svíþjóð og Halli & Heiðrún útí Hollandi ! Þó að það sé ekki nema bara einhverjar fréttir úr Söngskólanum , eins ómerkilegar og þær virðast vera , þá virka þær sem himnasending fyrir okkur í útlandinu :) Mér þætti allavega mjög vænt um heyra frá ykkur.
En hvernig er það Hollands farar, eruð þið með ykkar eigið Hollands blog sem við ættum að vita af?
mitt er http://helgirafn.blogspot.com
Látið heyra í ykkur :)
kveðja
HR
Söngfuglar
07. ágúst 2008 klukkan 16:43
Hér með bíð ég ykkur öllum í kveðjupartý til mín þann 23.ágúst kl.22/23. Eða á þeim tíma þegar menningarnóttin fer að verða subbulega leiðinleg og leiðinlega subbuleg. Kjörið að kíkja í gott teiti þá...
Tilefnið er för mín til Svíþjóðar þann 24. eða ég á að vera kominn út á flugvöll kl.05 um morgun þess dags. Planið er að djamma með góðu fólki alveg þar til ég á að mæta út á flugvöll...
Stórar hugmyndir eru uppi um að hafa lifandi tónlist og góða ´sing-along´ stemmingu.
Vonandi sér maður ykkur sem flest :)
-Helgi skiptinemi
Söngfuglar
16. júlí 2008 klukkan 20:57
Jæja, þá er spurning að fara að festa Flateyjarferðina okkar! Við ætlum sem sagt að fara að heimsækja Pétur helgina 25-27. júlí. Báturinn fer frá Stykkishólmi klukkan 15:30 fyrir þá sem vilja og geta farið á föstudeginum en hann fer síðan klukkan 09:00 á laugardags morguninn. Ég held að við séum að stefna á að fara á laugardagsmorgunn...bara vakna snemma og bruna á Stykkishólm. Við myndum síðan gista á tjaldsvæðinu. Held að Pétur hafi verið búinn að tala um að það séu einhverjir djassistar að spila á hótelinu á laugardagskvöldið, man ekki alveg nöfnin (Pétur, hjálp!)
Þeir sem eru sem sagt ákveðnir í að fara erum ég og Sverrir, Edda Björk, Kristín Lilja og Ingi kærastinn hennar. Það væri svo gaman ef við myndum fjölmenna og fara öll saman...höfum svo oft talað um að fara saman í útilegu en höfum aldrei gert það...núna er tækifærið!!! Vei!! Er búin að heyra að margir séu spenntir þannig að plís takið ákvörðun og kommentið ekki seinna en núna!!! Er líka búin senda event á Facebook á vonandi alla þannig að þið getið líka kommentað þar!
Hlakka til...
kv. Halla
Söngfuglar
02. júlí 2008 klukkan 00:00
Sæl öll sömul
Ég ætla að halda uppá afmælið mitt laugardaginn 12.júlí heima hjá mér kl.21.
Mig langar endilega til að hafa sama fyrirkomulag og í fyrra, þannig að fólk hópar sig saman 2-5 í hóp t.d. og býr til atriði eða partý leik í staðinn fyrir gjöf. Nema fólk vilji endilega gefa mér e-ð líka þá er það allt í góðu :)
Ykkur er sem sagt öllum boðið og eftir atriði og almenna upphitun þá skellum við okkur í pottinn að gömlum sið :) svo jafnvel niðrí bæ...
Látið heyra í ykkur og ég vona að þið komist sem flest!
-Helgi-
Söngfuglar
04. júní 2008 klukkan 09:20
Það hefur komið upp sú hugmynd að fara yfir eina helgi í sumar og heimsækja Pétur í Flatey. Við erum allvega 5 sem ætlum að fara laugardaginn 26. júlí og það væri bara snilld ef að fleiri myndu vilja koma með! Báturinn (Baldur) fer klukkan 09.00 um morguninn frá Stykkishólmi þannig að annað hvort væri hægt að keyra þangað á föstudagskvöldið og gista þar (í tjaldi eða eitthvað) eða að vakna úber snemma á laugardeginum (Báturinn fer reyndar líka kl 15:30 á laugardeginum, en okkur finnst það dáldið seint). Báturinn fer svo aftur til baka kl 13:15 og kl 19:30 á sunnudaginn.
Jæja, hvað segiði?? Eigum við ekki að skella okkur og gleðja Pétur...held að hann sé farinn að sakna okkar alveg rosalega!!! Hverjir erum memm???
kv. Halla
Söngfuglar
08. maí 2008 klukkan 13:23
Já það er próflokagrilll á morgun upp í Söngskóla...held að ég sé ekki að ljúga þegar ég segi að fjörið muni byrja klukkan 19:00!!! Hef nú ekket merkilegt að segja, vildi bara tékka hvort að það væri ekki stemmning fyrir morgundeginum???? Próflok, grillaðar pylsur og bjór/hvítvín...ómótstæðilegt verð ég nú að segja?

kv. Halla gríslíngur
Söngfuglar
25. apríl 2008 klukkan 15:26
Sunnudaginn 27. apríl nk. verður aðalfundur Leikfélagsins Sýna haldinn í húsnæði Leikfélag Hafnarfjarðar í Gamla Lækjarskóla. Fundurinn hefst klukkan 16.00 og á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Allir þeir sem áhuga kunna að hafa á starfa með félaginu eru hvattir til að mæta en félagið starfar á landsvísu og hefur sérhæft sig í að setja upp útileikssýningar á sumrin. Stjórnin
Kv. Jenný Formaður ;o)
Söngfuglar